Fékk þessa óborganlegu sögu senda í dag.

Í þorpi einu birtist einu sinni maður og kvaðst vilja kaupa apa af þorpsbúum á 1000 krónur stykkið.
Þar sem mikið var um apa í nágrenni þorpsins, fóru þorpsbúar að veiða apana og selja manninum þá.
Maðurinn keypti þúsundir apa af þorpsbúum á 1000 krónur, en þegar framboðið fór að minnka, bauðst maðurinn til að borga 2000 krónur fyrir apann. Aftur jókst framboðið um tíma, en síðan minnkaði það enn frekar og hætti síðan alveg þar sem erfiðara var fyrir þorpsbúa að finna fleiri apa til að selja.
Maðurinn tilkynnti þá að hann mundi borga 5000 krónur fyrir hvern apa sem hann fengi, en hann þyrfti að skreppa frá í smá tíma og aðstoðarmaður hans mundi sjá um kaupin á meðan.
Eftir að maðurinn var farinn, hóaði aðstoðarmaðurinn þorpsbúum saman og bauðst til að selja því apana, sem voru geymdir í búrum, á 3500 krónur stykkið. Fólkið gæti svo þegar maðurinn kæmi aftur selt honum apana á 5000 krónur. Þorpsbúar söfnuðu því saman öllu sínu sparifé og keyptu apana af aðstoðarmann inum.
Síðan hefur ekkert spurst til mannsins eða aðstoð armann sins.
 
Núna veistu allt um hvernig hlutabréfamarkaðurinn virkar.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðborg Eyjólfsdóttir

Þetta er nokkuð rétt, svona virkar semsé hlutabréfamarkaðurinn  Þá er ég ekki apakaupari því ég kaupi ekki hlutabréf haha

Guðborg Eyjólfsdóttir, 20.2.2008 kl. 21:26

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband