17.1.2008 | 12:50
17.janúar.
Í dag verð ág að blogga. Við eigum afmæli, stórmennin. Davíð Oddson, Al Capone, Eimskip og 'EG. Því til viðbótar eitt Heklugos og Persaflóastríð.
Af hverju fæ ég það á tilfinninguna að öll þessi nöfn hafi í í upphafi verið talin góð og gerðar til þeirra væntingar en endað sem hörmung fyrir samfélag sitt. Hvað á ég eiginlega eftir að gera af mér?
En hvað um það. Ég er víst að blogga um frétt.
Ég bíð eftir uppsögnum hjá íslensku bönkunum. Þá mun vandamál sjúkrahúsa, dvalarheimila, leikskóla og annarra ummönnunar stofnana (við að fá ófaglært fólk til starfa) hverfa, því þeir íslensku munu byrja á að segja upp ræstingafólkinu og þeim sem VINNA lægst launuðu þjónustuvinnuna.
Og ekki er líklegt að starfslokasamningarnir verði til þess að halda því fólki frá vinnumarkaðnum til langs tíma.
Deutsche Bank segir 300 manns upp | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
15.1.2008 | 13:55
Að finna sökudólg.
Ég ætla helst að hafa sem fæst orð um þessa greiningu frá Glitni enda fer maður hálfvegis hjá sér yfir því að þetta fólk skuli ekki sjá það sjálft að þau ættu að láta lítið fyrir sér fara á næstunni. En ég er nú heldur ekki viðskipta "sér"fræðingur.
En sem siglingafræðingur þá myndi ég láta það ógert að kalla í öll skipin í kring og segja þeim hvert best sé að stefna, þegar ég væri sjálfur búinn að sigla í strand. Og tala nú ekki um ef búið var að reyna að vara mig við skerinu.
En það er annað sem er farið að fara verulega í taugarnar á mér, og það er setningin sem nánast er orðin að viðhengi með öllum fréttum í dag, af efnahagsmálum heimsins, "um tapið af húsnæðislánum í Bandaríkjunum"
Eigum við að trúa því að það eina sem að sé í "heimsefnahagnum" sé það að einhver hópur efnalítilla lántakenda í Bandaríkjunum geti ekki borgað lánin til baka. Ég er einhverra hluta vegna ekki tilbúinn að kyngja þessu án umhugsunar. Það hljóta að vera hús í veði fyrir lánunum.
Trúir því einhver að vanskil á þessum lánum geti skekið viðskiptaheiminn líkt og verið hefur að undanförnu, ein sér, jafnvel svo að málsmetandi menn spá allsherjar heimskreppu?
Auglýsi hér með eftir einhverjum sem hefur lesið sér til um þetta, er hættur að vonast eftir greinargóðri úttekt frá íslenskum fjölmiðlum. Jafnvel Spegillinn á RUV hefur ekki enn tekið þetta mál til umfjöllunar en þar eru annars oft góðar fréttaskýringar.
Spá 30% hækkun á hlutabréfum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
12.1.2008 | 16:47
Aumingja við!
Einu sinni var ég frekar andvígur EU en svosem enginn öfgamaður í því. Eitt kvöld fyrir framan TV fréttirnar snérist ég algjörlega á einni mínútu. Ástæðan var sú að maðurinn sem var að tala kom með þau mögnuðustu rök fyrir inngöngu okkar Íslendinga í EU sem ég hef heyrt, og því að taka upp EURO sem reyndar þá var bara gjaldmiðill í undirbúningi. Það rann upp fyrir mér ljós.
Maðurinn sagði svona u.þ.b orðrétt.
"Við verðum að átta okkur á því að ef við göngum í EU þá missa íslensk stjórnvöld allveg yfirráðin yfir íslenskum efnahagsmálum og geta ekkert gert til að hafa áhrif á framgang þeirra".
Ég sat lengi huXi því á sömu sekúndunni rann upp í huga mér "hvað gæti betra komið fyrir íslenskan almenning".
Og þetta var þáverandi forsætisráðherra og núverandi Seðlabankastjóri sem var að tala.
Mergurinn málsins er sá að það erum bara við almúginn sem sitjum uppi með ónýta krónu og allar hennar afleiðingar. (og smáfyrirtækin) Þeir sem eiga eitthvað undir sér eru löngu komnir með allt sitt á hreint í erlendri mynt. Erlenda lánið mitt varð ég að taka gegnum íslenskan banka, bara til þess eins að borga honum þóknun fyrir viðvikið.
Við erum sem þjóð búin að sitja uppi með stjórnvöld áratugum saman sem hafa ekkert vit, eða getu, til að stjórna efnahagsmálum á þann veg að við hefðum sambærilega lífsafkomu og þjóðirnar næst okkur. Allavega hafa þeir ekki haft viljann, eða þá að samsæriskenningar sumra séu réttar og stjórnvöld hafi meir áhuga á að þjóna öðrum en þjóðinni.
Formaður Efnahags og viðskiptanefndar Alþingis sagði til dæmis í haust þegar EURO-upptöku umræða var í fjölmiðlum að hann væri ekkert viss um það að lægri vextir hentuðu íslendingum eins og staða efnahagsmála væri. Og þetta er einn af kjörnu fulltrúunum okkar.
Seðlabankinn baslast við að hækka vexti til að hægja á umsvifum í hagkerfinu en virðist ekki hafa vit til að átta sig á að peningarnir sem valda þenslunni eru innflutt fé sem þeir hafa ekkert með að segja. Okurvextirnir lenda bara á okkur almenningi, venjulegu fjölskyldufólki sem lítur ekki daglega á fasteignaverðið til að sjá hver "eignaaukningin "hefur verið, því við notum húsin/íbúðirnar bara sem þak yfir fjölskylduna. Á meðan heldur bygging ráðstefnu og tónlistarhallar áfram(ásamt öllu hinu) og þeir aðilar fara ekkert upp í Seðlabanka til að spyrja hvað má, þó stutt sé á milli.
Eða hefur einhver fréttamaður spurt á blaðamannafundum Seðlabankans (á vaxtabreitingadegi) hvort þeir í Seðlabankanum séu vissir um að peningarnir sem þeir eru að hækka vextina á séu sömu peningarnir og valda þenslunni.
Mín niðurstaða er því sú, eftir að hafa rennt huganum yfir ástand mála síðustu áratugi, að það besta sem þjóðinni gæti hlotnast sé að lostna undan áþján misvitra íslenskra stjórnmálamanna.
Það er eiginlega aumkunarvert að horfa upp á mann, berjast við að halda aftur af ofþenslunni, sem er til komin vegna slælegrar efnahagsstjórnunar hans sjálfs í fyrra starfi.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:59 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
10.1.2008 | 16:31
Er þetta eitthvað að hjarna við?
Getur verið að ástæðan fyrir þessari snörpu hækkun frá fyrstu mínútu í morgun sé vegna þess að allir bankarnir hafi rokið í að kaupa með von um að geta snúið þessari þrónu við? Þeir vilja væntanlega ekki að bréfin sem þeir tóku af fjárfestum í gær lækki meira, það verður nú varla til að hjálpa þeim upp úr lægðinni.
Nú er þessi hækkun að mestu gengin til baka og ekki að sjá að fjárfestar séu almennt bjartsýnir, allavega eru síðdegis fjárfestarnir ekki jafn bjartsýnir og morgunfjárfestarnir. Er annars nokkur þarna úti sem getur skýrt þetta fyrir okkur jólunum? Fáum við einhvern tímann að vita hverjir voru að kaupa í morgun? Allavega er ekki er að vænta skýringa frá greiningadeildunum okkar.
Og talandi um greiningadeildir bankanna. Nú verð ég bara að fá að blása út.
Ég las í öðru hvoru fríblaðinu mínu í morgun, haft eftir forstöðumanni einnar þessara deilda að "fjárfesta skorti sjálfstraust". Ég held að hvorki Guð, Alla eða Budda geti hjálpað þessu liði, svo veruleika firt sem það er. Og ekki einu sinni þó þeir sameinuðust allir um það.
Maðurinn í þessari stöðu! Og skylur ekki einu sinni að fjárfesta skortir ekki traust á sjálfa sig. Þá skortir traust á aðra og þar á meðal hann sjálfan.
Þvílík heimska að láta þetta út úr sér.
Hlutabréfavísitala upp um 4,2% | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
9.1.2008 | 16:14
Fyrstu uppsagnirnar í fjármálageiranum?
Ef þeir hafa selt stóran hluta eignanna og dregið saman rekstur, þá hljóta þeir að þurfa að fækka fólki.
Svoleiðis er þetta allavega í öðrum greinum atvinnulífsins.
En þessi bankastarfsemi lýtur allt öðrum lögmálum, hefur manni skilist síðustu árin, þannig að maður vaknar kannski í fyrramálið við auglýsingu frá Gnúp, í útvarpsvekjaranum, þar sem óskað er eftir starfsfólki.
Samið um endurskipulagningu Gnúps | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
8.1.2008 | 22:27
Nýtt ár!
Svona af því að ég er búinn að blása út í dag, og kominn í betra skap, þá ætla ég bara að óska öllum gleðilegs nýs árs. Annað væri argasti dónaskapur.
Kannski er ég bara kominn í betra skap af því að verðbréfavísitölurnar í USA lækkuðu um 1,5 - 2,5% í dag, og ég búinn að ná mér niður á blaðamanna fíflinu. (sjá hér að neðan)
Nýarskveðja.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
8.1.2008 | 20:57
Ótrúleg endaleysa.
Þessi frétt mynnir mig á þegar maður var ungur og þeir fjörugustu í partýinu sögðu "það hlýtur að vera hægt að redda einni vodka enn" svona um það bil þegar partýgestirnir voru að tínast heim til sín að áliðnum morgni.
Þessi frétt hlýtur að eiga að vera grín! Hverslags fjölmiðill finnur hjá sér þörf til að senda frá sér frétt um að einhver spái 0,5% verðhækkun á markaði sem er ekki einu sinni búinn að opna, og það á þessum síðustu og verstu. Á sama tíma var íslenska vísitalan enn að falla, og örvæntingin á markaðnum að aukast.
Alveg ótrúlegar þessar takmarkalausu tilraunir allra sem hagsmuna hafa að gæta til að hysja brókardrusluna upp um blessað viðskiptalífið okkar.
Ágætu viðskiptablaðamenn, hvort heldur þið eruð á Viðskiptablaðinu, Frjálsri Verslun, MBL eða annarstaðar. Viljið þið drattast til að fara að færa okkur vitibornar fréttir af því sem raunverulega er er að gerast á heimsmarkaðinum.
Eða eruð þið í sama flokki og þeir á greiningadeildunum? Hafið ekkert vit á þessu til að skýra út fyrir okkur hinum, hvert stefnir.
Útlit fyrir verðhækkun á Wall Street | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
21.12.2007 | 00:27
Að búa með fíflm.
Mikið hlítur það að vera þreytandi fyrir sprenglærða háskólaspekinga að lifa í landi með slíkum idiótum sem íslenskur almúgi er.
Í kvöld var í Speglinum á Ríkisútvarpinu (í tilefni af vaxtabreitingadegi Seðlabankans) sagt frá bréfi sem þeir þar á bæ fengu frá einhverjum aula. Einhvað var maðurinn óhress með vextina sem okkur almúganum er skammtaður (ath að stór fyrirtæki og betur settir einstaklingar eru löngu búnir að færa viðskipti sín til útlanda) og nefndi sem dæmi hækkunina á húsnæðisláninu sem hann er að reyna að borga af með daglegu striti sínu.
Vegna málsins kölluðu Spegilsmenn til speking frá Háskólanum sem gat nú ekki skilið hvað fíflið var að pípa.
Í svona málum má ekki gleyma aðal atriðinu sagði spekingurinn. Jú sjáðu hvað íbúðin hefur hækkað mikið á sama tíma. Eignamyndunin hefur verið mun meiri en hækkun skulda á sama tíma!
Þar höfum við það. Við sem vorum svo heimsk að halda að við værum bara að borga af kofa yfir hausinn á fjölskyldunni og orðin frekar þreitt á að Seðlabankinn hækki vextina á lánunum ( til þess að refsa okkur fyrir þenslumyndandi bruðl þeirra sem eru að framkvæma fyrir innflutt fé) við erum sem sé bara á grænni grein.
Við erum að fjárfesta í eignamyndun.
Mikið líður mér betur, nú get ég sofnað sæll.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
13.12.2007 | 22:55
Af ferðalögum.
Var að koma heim í dag eftir smá rúnt, og lenti ekki í neinum afgerandi hremmingum. Eftir að hafa fyllt nokkrar töskur í Edinburgh með frúnni um síðustu helgi, sendi ég hana aftur heim (með allt dótið) og hélt áfram til Rotterdam með viðkomu í , að mig mynnir Norwich, og Amsterdam.
Var að spá í, í dag, vegna heitasta málsins að það ætti kannski að senda þá USAsísku á námskeið til starfsbræðra sinna á Schiphol.
Þó ég þyrfti auðvitað að taka upp Laptopinn og fara úr skónum þá hafði ekki nokkur maður áhuga á að vita hvenær ég var síðast á túr eða hvort ég hafi einvhertímann heitið Osama Bin Laden. Samt er ég karlmaður og möguleikinn því fyrir hendi.
Karlinn sem var í því að hjálpa mér að setja allt draslið í bakkana góðu sönglaði lag á meðann og ég er viss um að meiriparturinn af því fólki sem var við hliðið sem ég fór um var brosandi út að eyrum við vinnu sína. Hvergi varð maður var við að þessa þjóð þjakaði sjúkleg vænisýki eða að þeir teldu þá sem um völlinn færu vera það hættulega að betra væri að flytja þá til með fót, hand og mittisjárnum.
En erum við þá ekki einmitt komin að kjarna málsins? Hollendingar hafa síðustu áratugina ekki gert mikið af því að drulla yfir aðrar þjóðir eða kynþætti (og þá helst þjóðir sem minnst mega sín) og hafa ekki ástæðu til að setja upp varnarmúr sjúklegs ótta.
Við eigum ekkert að þurfa að láta koma okkur á óvart svona meðferð eins og Erla Ósk fékk í stærsta lögregluríki heims. Og við skulum ekki láta okkur dreyma um að þetta hafi verið eina sambærilega tilfellið þennenn daginn þar á bæ. Við vitum öll af fangabúðum þeirra og þeirri staðreind að þeir hafa ekki einu sinni treyst sér til að ákæra það fólk sem þeir telja stórhættulega glæpamenn. Núna var bara um að ræða íslenskan borgara, og því hrökkvum við í kút.
Þegar einstaklingur fer að átta sig á að hann hefur aflað sér fjölda óvina með framkomu sinni, lítur hann örar um öxl. Sama er með heila þjóð. Þegar það nær inn í þjóðarsálina að framkoma hennar við aðra hefur leitt til þess að menn eru tilbúnir til að ganga í dauðann til að hefna, þá grípur þjóðina örvæntingarfull vænisýki.
Einhverra hluta vegna hafa svo þjóðirnar sem kallast eiga vinaþjóðir, ekki haft brjóst í sér til að segja meiningu sína við viðkomandi eftir 11.sept, hvað varðar framkomu þeirra. Þetta er eins og framkoma við ekkjumann sem er við það að rústa restinni af lífi barna sinna með ofdrykkju, en enginn af fjölskyldu né vinum segir neitt þvi hann á svo bágt eftir konumissinn. Allir tippla á tánum eins og kötturinn í kringum grautinn.
Ég vona að ég eigi betri vini.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
5.12.2007 | 22:02
FL skúbb. Enn eitt heimsmetið!
Ég held að í dag hafi verið sett heimsmet í viðskiptaheimsku. Fyrirtæki sem sett var í viðskiptastöðvun í Kauphöllinni vegna óvissu um framtíð þess, kom aftur í umferð í morgun. Eftir fréttir gærdagsins og fregnir af því hvernig forráðamenn fyrirtækisins redduðu málunum, þá fannst aðili sem var tilbúinn í að kaupa bréf í félaginu á talsvert hærra gengi en reddingarferlið hljóðaði uppá. Þ.e, einhver keypti á genginu 16,35 en hlutafjáraukningin í gær hljóðaði upp á 14,7.
Þetta er algerlega æðislegt. Ég er ekkert lengur hissa á því að verðbréfamarkaðurinn á Íslandi sé eins og hann er.
Forsvarsmenn FL sátu yfir þessu í tæpa tvo daga og komust að þeirri niðurstöðu að enginn vegur væri að fá nokkurn til að koma inn með reddingarfé á hærra gengi en 14,7. Þessir aðilar hafa aðgang að öllum bókum félagsins (FL) og vita sennilega líka einir hvernig veðsetningastaðan er á þeim fasteignafélögum sem sett voru í púkkið.
Svo segir sagan að Fons fái líka að kaupa á genginu 14,7, allt að 10% hlut.
Getum við fengið að sjá mynd af þeim sem keypti í dag á 16,35. Var þetta kannski Hannes Smára
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)